Select Page

Myers-Briggs persónuleikamat

MBTI (Myers-Briggs Type Indicator) á rætur sínar að rekja til kenninga svissneska sálfræðingsins Carl Gustav Jung um sálrænar gerðir, sem hann setti fram í bók sinni „Psychological Types“ árið 1921. Jung taldi að fólk hefði mismunandi leiðir til að skynja heiminn og taka ákvarðanir.

Katharine Cook Briggs og dóttir hennar Isabel Briggs Myers urðu heillaðar af kenningum Jungs og hófu að þróa persónuleikapróf byggt á þeim snemma á fjórða áratug 20. aldar. Þær höfðu það að markmiði að gera kenningar Jungs aðgengilegri og nothæfari fyrir almenning.

  1. 1940: Fyrstu útgáfur prófsins voru þróaðar og prófaðar.
  2. 1956: Fyrsta handbókin um MBTI var gefin út.
  3. 1962: Educational Testing Service (ETS) tók að sér dreifingu prófsins.
  4. 1975: Consulting Psychologists Press (nú CPP, Inc.) tók við dreifingu og þróun MBTI.

Upprunalega útgáfan innihélt fleiri en 100 spurningar, en með tímanum hafa verið þróaðar styttri útgáfur, þar á meðal 50 spurninga útgáfan. Hér er notast við 72 spurningar.

Þó að MBTI sé ekki hannað sem klínískt greiningartæki, hefur það verið notað í ýmsum klínískum aðstæðum:

  1. Ráðgjöf: Gæti hjálpað skjólstæðingum að skilja eigin styrk og veikleika.
  2. Pararráðgjöf: Gæti bætt skilning á samskipti para.
  3. Starfsráðgjöf: Gæti aðstoðað við val á starfsferli.
  4. Teymisþjálfun: Gæti bætt samskipti og samvinnu í vinnuhópum.

Þó ber að hafa í huga að margir sálfræðingar vara við notkun MBTI í klínísku samhengi vegna takmarkaðs vísindalega grunns.

Viltu vita meira?

McCrae, R. R., & Costa, P. T. (1989). Reinterpreting the Myers-Briggs Type Indicator from the perspective of the five-factor model of personality. Journal of Personality, 57(1), 17-40.

Pittenger, D. J. (1993). Measuring the MBTI… and coming up short. Journal of Career Planning and Employment, 54(1), 48-52.

Gardner, W. L., & Martinko, M. J. (1996). Using the Myers-Briggs Type Indicator to study managers: A literature review and research agenda. Journal of Management, 22(1), 45-83.

Boyle, G. J. (1995). Myers-Briggs Type Indicator (MBTI): Some psychometric limitations. Australian Psychologist, 30(1), 71-74.

Furnham, A. (1996). The big five versus the big four: the relationship between the Myers-Briggs Type Indicator (MBTI) and NEO-PI five factor model of personality. Personality and Individual Differences, 21(2), 303-307.

Capraro, R. M., & Capraro, M. M. (2002). Myers-Briggs Type Indicator score reliability across studies: A meta-analytic reliability generalization study. Educational and Psychological Measurement, 62(4), 590-602.

Bayne, R. (1995). The Myers-Briggs Type Indicator: A critical review and practical guide. Nelson Thornes.

Carskadon, T. G. (1979). Clinical and counseling aspects of the Myers-Briggs Type Indicator: A research review. Research in Psychological Type, 2(4), 2-31.

Harvey, R. J. (1996). Reliability and validity. In A. L. Hammer (Ed.), MBTI applications: A decade of research on the Myers-Briggs Type Indicator (pp. 5-29). Consulting Psychologists Press.

Carlson, J. G. (1985). Recent assessments of the Myers-Briggs Type Indicator. Journal of Personality Assessment, 49(4), 356-365.

Stricker, L. J., & Ross, J. (1964). An assessment of some structural properties of the Jungian personality typology. The Journal of Abnormal and Social Psychology, 68(1), 62-71.

Hammer, A. L., & Mitchell, W. D. (1996). The distribution of MBTI types in the US by gender and ethnic group. Journal of Psychological Type, 37, 2-15.

Saggino, A., Cooper, C., & Kline, P. (2001). A confirmatory factor analysis of the Myers–Briggs Type Indicator. Personality and Individual Differences, 30(1), 3-9. 

Mældir eru 8 eiginleikar innan persónugerðanna, hver bókstafur stendur fyrir einum eiginleika:

E (Extroversion) Úthverfa

I (Introversion): Innhverfa

S (Sensing) Skynjun

N (Intuition): Innsæi

T (Thinking) Hugsun

F Feeling): Tilfinning

J (Judging) Dómgreind

P (Perceiving): Skynjun

Í MBTI prófinu eru 16 mismunandi persónugerðir (72 spurningar í þessu prófi). Hver persónugerð er svo táknuð með fjórum bókstöfum sem standa fyrir ofangreindum eiginleikum.

ISTJ

Skipuleggjandinn

ISFJ

Verndarinn

INFJ

Ráðgjafinn

INTJ

Arkitektinn

ISTP

Handlagni greinandinn

ISFP

Ævintýramaðurinn

INFP

Miðlarinn

INTP

Hugsuðurinn

ESTP

Framkvæmdamaðurinn

ESFP

Skemmtikrafturinn

ENFP

Hvatningaraflið

ENTP

Uppfinningamaðurinn

ESTJ

Framkvæmdastjórinn

ESFJ

Umhyggjusami

ENFJ

Frumkvöðullinn

ENTJ

Leiðtoginn

MBTI Persónuleikapróf

ATHUGIÐ

Spurningarlistar, sjálfsmat og önnur próf sem tengjast geðheilbrigði og eru birt á þessari vefsíðu eru aðeins eitt af mörgum verkfærum sem notuð eru til að meta andlega heilsu og hegðun. Þeim er hvorki ætlað að veita greiningar né leysa af hólmi faglega ráðgjöf. Aðkoma sérfræðinga á sviði geðheilbrigðis, meðal annars, er algjör forsenda fyrir raunsæi og árangri í geðheilbrigðismati. Niðurstöður spurningalista og prófa á personuleikaprof.is ætti fyrst og fremst að líta á sem upphafspunkt til frekari umhugsunar, fræðslu og skemmtunnar en alls ekki sem endanlega niðurstöðu.   

Ræddu niðurstöður þínar við hæfan heilbrigðisstarfsmann áður en þú tekur ákvörðun sem byggir á þeim.

You have Successfully Subscribed!