Select Page

Sjálfsmatslisti fyrir þunglyndi PHQ-9

PHQ-9 er sjálfsmatslisti sem notaður er til að skima fyrir þunglyndi og meta alvarleika þess. Listinn samanstendur af níu spurningum sem byggjast á greiningarviðmiðum fyrir alvarlegt þunglyndi samkvæmt DSM-IV (Diagnostic and Statistical Manual of Mental Disorders).

Einstaklingurinn er beðinn um að meta hversu oft hann hefur upplifað ákveðin einkenni á síðastliðnum tveimur vikum. Spurningarnar ná yfir helstu einkenni þunglyndis, svo sem depurð, áhugaleysi, svefntruflanir, þreytu, breytingar á matarlyst, einbeitingarerfiðleika og hugsanir um dauða.

Hver spurning er metin á kvarðanum 0-3, þar sem 0 þýðir „Alls ekki“ og 3 þýðir „Næstum daglega“. Heildarskori er síðan safnað saman og það gefur vísbendingu um alvarleika þunglyndiseinkenna.

PHQ-9 er mikið notaður bæði í heilsugæslu og geðheilbrigðisþjónustu vegna þess hve einfaldur og fljótlegur hann er í notkun. Hann getur verið gagnlegur til að fylgjast með framvindu meðferðar og meta árangur hennar.

Þó að PHQ-9 sé gott skimunartæki, er mikilvægt að hafa í huga að hann er ekki greiningartæki. Fagaðili þarf að framkvæma ítarlegt klínískt mat til að staðfesta greiningu á þunglyndi.

Viltu vita meira?

Kroenke, K., Spitzer, R. L., & Williams, J. B. (2001). The PHQ‐9: validity of a brief depression severity measure. Journal of General Internal Medicine, 16(9), 606-613.

Löwe, B., Kroenke, K., Herzog, W., & Gräfe, K. (2004). Measuring depression outcome with a brief self-report instrument: sensitivity to change of the Patient Health Questionnaire (PHQ-9). Journal of Affective Disorders, 81(1), 61-66.

Martin, A., Rief, W., Klaiberg, A., & Braehler, E. (2006). Validity of the brief patient health questionnaire mood scale (PHQ-9) in the general population. General Hospital Psychiatry, 28(1), 71-77.

Spitzer, R. L., Kroenke, K., Williams, J. B., & Löwe, B. (2006). A brief measure for assessing generalized anxiety disorder: the GAD-7. Archives of Internal Medicine, 166(10), 1092-1097.

Huang, F. Y., Chung, H., Kroenke, K., Delucchi, K. L., & Spitzer, R. L. (2006). Using the patient health questionnaire‐9 to measure depression among racially and ethnically diverse primary care patients. Journal of General Internal Medicine, 21(6), 547-552.

Gilbody, S., Richards, D., Brealey, S., & Hewitt, C. (2007). Screening for depression in medical settings with the Patient Health Questionnaire (PHQ): a diagnostic meta-analysis. Journal of General Internal Medicine, 22(11), 1596-1602.

 

 

Athugið

Prófið er aðeins ætlað til fræðslu og afþreyingar. Því er ekki ætlað til greininga á neinum sjúkdómi eða ástandi og ætti ekki að vera notað sem sálfræðileg ráðgjöf af neinu tagi.  Prófið er sett hér fram án allrar ábyrgðar hvort sem um ræðir nákvæmni og/eða réttmæti.

Spurningalistar geta aldrei komið í stað viðtals við fagfólk með sérþekkingu.

Depression Test

Þunglyndi PHQ-9

Hversu oft hafa eftirfarandi vandamál truflað þig síðastliðnar tvær vikur?

Athugið

Prófið er aðeins ætlað til fræðslu og afþreyingar. Því er ekki ætlað til greininga á neinum sjúkdómi eða ástandi og ætti ekki að vera notað sem sálfræðileg ráðgjöf af neinu tagi.  Prófið er sett hér fram án allrar ábyrgðar hvort sem um ræðir nákvæmni og/eða réttmæti.

Spurningalistar geta aldrei komið í stað viðtals við fagfólk með sérþekkingu.

ATHUGIÐ

Spurningarlistar, sjálfsmat og önnur próf sem tengjast geðheilbrigði og eru birt á þessari vefsíðu eru aðeins eitt af mörgum verkfærum sem notuð eru til að meta andlega heilsu og hegðun. Þeim er hvorki ætlað að veita greiningar né leysa af hólmi faglega ráðgjöf. Aðkoma sérfræðinga á sviði geðheilbrigðis, meðal annars, er algjör forsenda fyrir raunsæi og árangri í geðheilbrigðismati. Niðurstöður spurningalista og prófa á personuleikaprof.is ætti fyrst og fremst að líta á sem upphafspunkt til frekari umhugsunar, fræðslu og skemmtunnar en alls ekki sem endanlega niðurstöðu.   

Ræddu niðurstöður þínar við hæfan heilbrigðisstarfsmann áður en þú tekur ákvörðun sem byggir á þeim.

You have Successfully Subscribed!